Elko-deildin · Fortnite · RÍSÍ
Lau 31. okt · 13:00 til 15:15
4 leikir · ýttu til að skoðaEnginn byggir. Bara skotfimi og staðsetning. Allir eiga séns, líka þú sem mætir í fyrsta sinn.
Elko-deildin · Fortnite · RÍSÍ
Hvenær
Lau 31. okt13:00 til 15:15 · byrjar eftir --Leikirnir
Í lobbýinu
sarafells, bushi-gjonaj, HakonAir, Ano_XIV, Veigzi bucket, Stefán Atli, YT JynxFN, wish xd, Mikki596 og Seli King.
Skráning lokar lau 31. okt kl. 12:00.
Dagurinn
Lobbýið opnar korter fyrir hvern leik og lokar fimm mínútum fyrir.
Verðlaun
Borgað eftir hvert mót, ekki bara í lokin.
Fimm efstu fá borgað.
Á hvoru haustmóti, 31. okt og 5. des. Plús lukkupottur með Elko vörum: vinnirðu flokk ferðu í pott sem er dreginn vikuna eftir mótið.
Tímabilið 2026/27
Öll á laugardegi kl. 13:00, spiluð heima.
Þriggja móta pakkinn gildir á 31. okt, 5. des og fyrsta mótið í vor.
Meðstjórnendur
Sá fyrsti er kominn. Hinir tveir koma í ljós síðar.
Lobbýkóðinn
Kóðinn birtist hér korter fyrir hvern leik á mótsdegi. Þú þarft Epic nafnið og netfangið sem þú skráðir þig með.
Spurningar
Nei. Leikur 1 er Zero Build, þar sem enginn byggir, svo þú átt séns þótt þú kunnir ekki byggingar. Nýliði mótsins eru sérstök verðlaun fyrir þann sem er bestur af þeim sem mæta í fyrsta sinn.
Þrettán ára eða eldri. Sért þú undir 18 ára þarf forráðamaður að staðfesta þátttökuna. Þú setur netfangið hans inn í skráninguna og hann fær póst.
Nei, þú spilar heiman frá þér í þinni eigin tölvu eða konsól. Útsendingin kemur frá stúdíói RÍSÍ og þú horfir eftir á ef þú vilt.
Kóðinn birtist hér á síðunni og á Discord korter fyrir hvern leik. Þú setur hann inn í Fortnite undir Custom Matchmaking. Þú verður að vera á Evrópu svæðinu.
Þú mátt tengjast aftur og halda áfram í sama leik ef þú nærð því. Náirðu ekki næsta lobbý áður en það lokar færðu núll fyrir þann leik en mátt spila þann næsta.
Já. Deildin er opin fyrir allar vélar. Þú þarft bara Epic reikning og að geta sett inn custom matchmaking kóða.
Sá sem vinnur leik 1 verður skotmark í leik 2, og sá sem vinnur leik 2 verður skotmark í leik 3. Nafnið hans birtist á skjánum og allir vita hver hann er. Að fella skotmarkið gefur 8 stig í stað 2.
Já, ef þú lætur vita áður en skráning lokar klukkan 12:00 á mótsdegi. Eftir það er sætið þitt frátekið og lobbýlistinn kominn í grafíkina.
THIS EVENT IS IN NO WAY SPONSORED, ENDORSED, OR ADMINISTERED BY, OR OTHERWISE ASSOCIATED WITH, EPIC GAMES, INC. THE INFORMATION PLAYERS PROVIDE IN CONNECTION WITH THIS EVENT IS BEING PROVIDED TO EVENT ORGANIZER AND NOT TO EPIC GAMES, INC.
BY PARTICIPATING IN THIS EVENT, TO THE EXTENT PERMITTED BY APPLICABLE LAW, PLAYERS AGREE TO RELEASE AND HOLD HARMLESS EPIC GAMES, INC., ITS LICENSORS, ITS AND THEIR AFFILIATES, AND ITS AND THEIR EMPLOYEES, OFFICERS, DIRECTORS, AGENTS, CONTRACTORS, AND OTHER REPRESENTATIVES FROM ALL CLAIMS, DEMANDS, ACTIONS, LOSSES, LIABILITIES, AND EXPENSES RELATED TO THE EVENT.
Fortnite er vörumerki Epic Games, Inc. Persónuupplýsingar keppenda eru unnar af Rafíþróttasambandi Íslands og eingöngu notaðar til að halda mótið.